Í LJÓSI AÐSTÆÐNA HEFUR VERIÐ TEKIN ÁKVÖRÐUN UM AÐ FRESTA ÞESSU ERINDI
Þegar við upplifum áfall eins og ástvinamissi er flestum hjálplegt að komast í kynni við og hitta aðra sem eru í sömu sporum, finna skilning og stuðning þeirra sem þekkja af eigin reynslu hvað við er að etja.
Sorgarmiðstöð hefur ákveðið að bjóða upp á opið hús og djúpslökun einu sinni í mánuði. Þar gefst syrgjendum tækifæri til að slaka vel á, hlaða batteríin og hitta aðra sem deila reynslu. Ákveðið umræðuefni verður tekið fyrir hverju sinni.
Nánari lýsing: Yoga Nidra hefst kl. 19:30 í sal Sorgarmiðstöðvar Lunganu og mun Sigrún Jónsdóttir Yoga Nidra kennari leiða hópinn inn í notalega djúpslökun. Óskað er eftir skráningu hér
Samtal um ástvinamissi hefst kl. 19:50 inn í litla samverurými Hjartanu.
Frjálst er að mæta í bæði djúpslökun og samtal eða annað hvort.
Það kostar ekkert á þennan viðburð en öllum er frjálst að styrkja starf Sorgarmiðstöðvar hér
Verið innilega velkomin
Boðið er upp á kaffi og með því.
Hefst kl 19:30