Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður haldið 24. ágúst næstkomandi og er í boði að hlaupa til stuðnings Sorgarmiðstöðvar. Við söfnum fyrir stuðningshópastarfi okkar en það er stór hluti af starfsemi Sorgarmiðstöðvar.
Hægt er að skrá sig í hlaupið hér
Fyrir hlaupið, þann 22. og 23. ágúst, fer fram Fit and Run expo sem er sýning fyrir alla fjölskylduna þar sem áhersla er lögð á undirbúning hlaupara fyrir Reykjavíkurmaraþonið en einnig verða góðgerðarfélögin á staðnum að kynna starfsemi sína og taka á móti hlaupurum sem hlaupa fyrir félagið.
Sorgarmiðstöð verður að sjálfsögðu með bás á staðnum og er opnunartíminn í höllinni sem hér segir:
Fimmtudagur, 22. ágúst
Frá kl. 15:00 – 20:00
Föstudagur, 23. ágúst
Frá kl. 14:00 – 19:00
Hægt er að nálgast sorgarbönd merkt Sorgarmiðstöð til að hlaupa með. Við afhendum böndin á básnum okkar í höllinni og hvetjum alla hlauparana okkar og aðra að koma við, sækja sorgarbönd og heilsa upp á okkur.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og gangi ykkur vel!