13/11/2024
Árbæjarlaug

Skref fyrir skref – Stífluhringurinn

Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF fyrir SKREF býður upp á skipulagðar göngur einu sinni í mánuði. Farið verður í léttar göngur í nálægð við Reykjavík.

Miðvikudaginn 13. nóvember munum við ganga Stífluhringinn í Árbæ. Við hittumst hjá Árbæjarlaug og göngum þaðan niður að stíflu og svo upp aftur að lauginni.

Mæting er kl. 17:15. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 17:30

Það er nauðsynlegt að skrá sig hér og er lágmarksþátttaka.

Ef þið hafið einhverjar fyrispurnir eða þurfið að tilkynna forföll má hafa samband á skref@sorgarmidstod.is

Að nýta náttúruna og útiveru gefur okkur orku og losar um spennu. Göngur eru því hjálplegar þegar við tökum skrefin framávið í sorgarferlinu.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira