08/06/2020
Lífsgæðasetur st. Jó

Sorg og sorgarviðbrögð – Lokað erindi fyrir þá sem hafa nýlega misst ástvin

Sorg og sárar tilfinningar eru eðlileg viðbrögð við missi. Sorgin er  hluti af mannlegri reynslu og henni þarf að finna eðlilegan farveg. Mikilvægt er að vita að sorg er einstaklingsbundin og breytileg.  Með grunnfræðslu um sorg  og sorgarviðbrögð og ábendingum  um ráð, sem gagnast hafa syrgjendum  er leitast við að auka skilning á sorgarferlinu og  þannig styðja fólk  til að finna jafnvægi  í daglegu lífi  eftir ástvinamissi. Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á lokað erindi fyrir þá sem hafa nýlega misst ástvin.
Á erindinu verður starfsemi Sorgarmiðstöðvar einnig kynnt stuttlega.

Syrgjendum stendur til boða að taka einn náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa. Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandand og er hámarksfjöldi í hvert skipti.

Skráning hér

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira