ÞVÍ MIÐUR ER ORÐIÐ FULLT Á ÞETTA ERINDI
Sorg og sárar tilfinningar eru eðlileg viðbrögð við missi. Sorgin er hluti af mannlegri reynslu og henni þarf að finna eðlilegan farveg. Mikilvægt er að vita að sorg er einstaklingsbundin og breytileg. Með grunnfræðslu um sorg og sorgarviðbrögð og ábendingum um ráð, sem gagnast hafa syrgjendum er leitast við að auka skilning á sorgarferlinu og þannig styðja fólk til að finna jafnvægi í daglegu lífi eftir ástvinamissi. Sorgarmiðstöð býður reglulega upp á þetta lokaða erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin. Á erindinu mun Sorgarmiðstöð einnig kynna stuttlega starfsemi sína.
Syrgjendum stendur til boða að taka einn náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa. Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið og er hámarksfjöldi í hvert skipti.
skráning
Erindið er laugardaginn 12. desember og hefst kl. 15