14/06/2026
Grasagarðurinn

Sorgarhlaupið

Sorgarhlaupið verður haldið í fyrsta skipti sunnudaginn 14. júní í Laugardalnum. Hlaupið er fyrir alla þá sem vilja eiga góða samverustund og um leið styðja við gott málefni. Viðburðurinn er jafnframt hugsaður sem létt og skemmtileg upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Það er ekki nauðsynlegt að hlaupa heldur viljum við með viðburðinum hvetja fólk til að verja tíma saman og njóta útiverunar.

Viðburðurinn er fjölskyldusamvera og því eru börn hjartanlega velkomin, enda leggjum við áherslu á hlýlegt og opið andrúmsloft fyrir alla fjölskylduna. Skemmtun fyrir börnin verður á staðnum.

Skráning í Sorgarhlaupið hér: https://docs.google.com/…/1FAIpQLSd9nj4cLY2…/viewform…

Tekið er við frjálsum framlögum frá þeim sem vilja styrkja Sorgamiðstöð. Á staðnum verður varningur til sölu, til dæmis leiðiskerti og “Hjartaknús” lyklakyppur. Einnig er hægt að gerast “vinur í raun” og með því styrkja Sorgarmiðstöð mánaðarlega.

Styrkja Sorgarmiðstöð: https://sorgarmidstod.is/styrkja/

Jafnframt viljum við hvetja þátttakendur til þess að slást í hóp einstaklinga sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir hönd Sorgarmiðstöðvar og styðja þannig enn frekar við starfið❤️

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira