Rannsóknir hafa bent til þess að ein klukkustund í Yoga Nidra geti jafngilt 4 tímum í svefni. Nidra þýðir svefn og yoga þýðir eining, þannig þýðir Yoga Nidra vakandi svefn þar sem meðvitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld á meðan hugurinn hvílir í djúpri kyrrð.
Nánari lýsing:
Mæting er kl. 20:00 í Augað sal Sorgarmiðstöðvar á 4. hæð. Sigrún Yoga Nidra kennari mun taka á móti ykkur og leiða hópinn inn í notalega djúpslökun. Gengið er inn í salinn hljóðlega og eiga allir að koma sér vel fyrir á dýnu. Þið þurfið að koma með hlýtt teppi, undirlag á dýnuna og kodda undir höfuð og jafnvel fætur. Augnhvílu er líka gott að koma með eða eitthvað annað sem hægt er að leggja yfir augun (dýpkar slökunina). Einnig er gott að mæta í hlýjum og þægilegum fatnaði.
Það verða allir að skrá sig þar sem það er takmarkaður fjöldi.
Skráning hér
Það kostar ekkert á þennan viðburð og tökum við vel á móti ykkur