12/12/2023
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Yoga Nidra djúpslökun

Komdu og njóttu kyrrðar með okkur í desember.

Sigrún hjá miro.is og Svefnjóga býður aðstandendum Sorgarmiðstöðvar í Yoga Nidra sér að kostnaðarlausu. Það verða allir að skrá sig þar sem það er takmarkaður fjöldi.

Það er mikilvægt að ná hvíld og ró í amstri dagsins og þegar við upplifum sorg fylgir henni gjarnan mikið álag og streita. Rannsóknir benda til þess að ein klukkustund í Yoga Nidra geti jafngilt fjórum tímum í svefni. Nidra þýðir svefn og yoga þýðir eining, þannig þýðir Yoga Nidra vakandi svefn þar sem meðvitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld á meðan hugurinn hvílir í djúpri kyrrð.

Nánari lýsing:
Sigrún Yoga Nidra kennari tekur á móti hópnum á 4. hæð Sorgarmiðstöðvarinnar og mun leiða hann inn í notalega djúpslökun. Gengið er inn í salinn hljóðlega og eiga allir að koma sér vel fyrir á dýnu. Allir þurfa að koma með hlýtt teppi, undirlag á dýnuna. Það má koma með kodda undir höfuð og fætur, en einnig hægt að fá lánað. Augnhvílu er líka gott að koma með eða eitthvað annað sem hægt er að leggja yfir augun (dýpkar slökunina). Einnig er gott að mæta í hlýjum og þægilegum fatnaði.

Það kostar ekkert á þennan viðburð og tökum við vel á móti ykkur. Þau sem vilja styrkja okkur geta gert það hér.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira