23/04/2024
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetrið st. Jó

Yoga Nidra djúpslökun – FRESTAÐ

Það er mikilvægt að ná hvíld og ró í amstri dagsins og þegar við upplifum sorg fylgir henni gjarnan mikið álag og streita. Rannsóknir hafa bent til þess að ein klukkustund í Yoga Nidra geti jafngilt 4 tímum í svefni. Nidra þýðir svefn og yoga þýðir eining, þannig þýðir Yoga Nidra vakandi svefn þar sem meðvitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld á meðan hugurinn hvílir í kyrrð.

Nánari lýsing:
Yogastundin er í salnum (Augað) á 4. hæð. Sigrún eða Ólafur Yoga Nidra kennarar taka á móti hópnum og leiða hann inn í notalega djúpslökun. Gengið er inn í salinn hljóðlega og eiga allir að koma sér vel fyrir á dýnu. Gott er að hafa meðferiðs augnhvílu til að leggja yfir augun (dýpkar slökunina), annar búnaður er á staðnum. Einnig er gott að mæta í hlýjum og þægilegum fatnaði.

Það verða allir að skrá sig í Yoga Nidra þar sem fjöldinn er takmarkaður.
Skráning – tíma frestað, ekki hægt að skrá sig

Það kostar ekkert á þennan viðburð og tökum við vel á móti ykkur. Þau sem vilja styrkja okkur geta gert það hér

Tíminn hefst kl. 20:00

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira