Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

17/12/2024
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Yoga Nidra djúpslökun

Sigrún Jónsdóttir Yoga Nidra kennari hefur undanfarin jól boðið Sorgarmiðstöð upp á Yoga Nidra djúpslökun fyrir syrgjendur þar sem hún gefur vinnuna sína í desember. Við erum henni afar þakklát og stuðningur sem þessi nýtitst okkur ávallt. Stundinn verður þann 17. desember kl. 19:00 í Lífsgæðasetri st. Jó, þar sem Sorgarmiðstöð er staðsett.

Nánari lýsing:
Yogastundin er í salnum (Augað) á 4. hæð. Gengið er inn í salinn hljóðlega og eiga allir að koma sér vel fyrir á dýnu. Gott er að hafa meðferiðs augnhvílu til að leggja yfir augun (dýpkar slökunina), annar búnaður er á staðnum. Einnig er gott að mæta í hlýjum og þægilegum fatnað

Rannsóknir hafa bent til þess að ein klukkustund í Yoga Nidra geti jafngilt 4 tímum í svefni. Nidra þýðir svefn og yoga þýðir eining, þannig þýðir Yoga Nidra vakandi svefn þar sem meðvitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld á meðan hugurinn hvílir í djúpri kyrrð.

Þetta er einstakt tækifæri til að næra sál og líkama í amstri jólanna.

Það verða allir að skrá sig þar sem það er takmarkaður fjöldi.
Skráning hér

Tíminn hefst kl 19:00

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira