Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á viðtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en félagið hefur svo góðfúslega gefið okkur aðgang að rýminu sínu fyrir þennan þjónustulið okkar.
Fagaðili Sorgarmiðstöðvar annast viðtölin.
Hægt er bóka tíma í síma 551 4141 eða með því að senda tölvupóst á sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
Þjónustan er ætluð þeim sem þurfa stuðning samhliða þátttöku í stuðningshópum Sorgarmiðstöðvar, þeim sem eiga erfitt með að ákvaða hvaða stuðningshópur hentar þeim best og svo eru viðtölin einnig góður viðkomustaður fyrir þá sem eru að leita að leiðum til úrvinnslu eftir ástvinamissi.
LÍFSGÆÐASETUR Í ST. JÓ
SUÐURGATA 41, 220 HAFNARFJÖRÐUR
sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
Sími: 551 4141
Kennitala: 521118-0400
Reikningsnúmer: 0513-26-009753