Dagur barna í sorg 2025

Á degi barna í sorg sem í ár var haldinn 20. nóvember ákváðu Örninn og Sorgarmiðstöð að sameina krafta sína og buðu upp á fræðslu í hádeginu og minningarstund fyrir börn og fjölskyldur þeirra um eftirmiðdaginn. Í hádegiserindinu ræddu fimm ungmenni sem öll eiga reynslu af missi við Matthildi Bjarnadóttur prest og verkefnastjóra Arnarins um […]

Samvera hópstjóra og jafningja í nóvember

Mínigarðurinn tók rausnarlega á móti Sorgarmiðstöð fyrstu vikuna í nóvember þar sem hópstjórar og jafningjar hittust og áttu góða kvöldstund saman. Í byrjun kvöldsins fór Dagbjört Eiríksdóttir, nýr fagstjóri Sorgarmiðstöðvar, yfir mikilvægi þess að hópstjórar og jafningjar hlúi vel að sér samhliða faglegri vinnu sinni. Einnig var farið inn á ýmis önnur mál er snúa […]