Dagur barna í sorg 2025

Á degi barna í sorg sem í ár var haldinn 20. nóvember ákváðu Örninn og Sorgarmiðstöð að sameina krafta sína og buðu upp á fræðslu í hádeginu og minningarstund fyrir börn og fjölskyldur þeirra um eftirmiðdaginn.

Í hádegiserindinu ræddu fimm ungmenni sem öll eiga reynslu af missi við Matthildi Bjarnadóttur prest og verkefnastjóra Arnarins um reynslu sína. Þar deildu þau því sem gagnaðist þeim í þeirra eigin sorgarúrvinnslu og hvað þau lærðu á leiðinni. Fræðslan var sýnd í beinu streymu og síðan var boðið upp á listasmiðju og afrakstur hennar var notaður í minninarstundinni síðar um daginn.

Minningarstundin var haldin í Vídalínskirkju þar sem Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson fluttu hugljúfa tóna. Heiðrún Jónsdóttir fór með ávarp. Stundin var á forsendum ungs fólks og fjölskyldna þeirra þar sem minnst var með táknræmum ætti látinna ástvina. Í lok stundarinnar sameinuðust allir að borðum í notalegru andrúmslofti og fengu súpu og brauð.

Við þökkum öllum ungum syrgjendum og aðstandendum þeirra fyrir fallega stund.

Vikuna fyrir Dag barna í sorg var herferð í gangi á samfélagsmiðlum Arnarins og Sorgarmiðstöðvar þar sem ungir syrgjendur deildu sínum sögum og bjargráðum. Tilgangurinn með þeirri herferð var að vekja athygli á deginum og mikilvægi heilbrigðrar sorgarúrvinnslu fyrir ungt fólk.

Karlmenn og sorg
Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á ...
Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira