Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur

Þann 8. maí 2026 veitti Sorgarmiðstöð Heiðursbollann í fimmta sinn. Að þessu sinni hlaut hún Rósa Kristjánsdóttir viðurkenninguna. Heiðursbollinn er veittur ár hvert, einstaklingi sem hefur lagt sitt af mörkum til stuðnings syrgjenda á Íslandi.

Rósa hefur helgað líf sitt hjúkrun og sálrænni þjónustu. Hún starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Landspítala frá árinu 1974 og vígðist til djákna árið 1995. Þótt Rósa hafi farið á eftirlaun frá Landspítala árið 2023 er hún enn sem fyrr að gera gagn. Rósa leiðir stuðningshópa fyrir Gleym mér ei og er einn af stofnendum á bakvið Dauðakaffið. Með áratuga reynslu sinni í hjúkrun og sálgæslu hefur hún veitt ótal einstaklingum stuðning, hlýju og styrk.

Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís hannar einnig “hjartaknús” lyklakyppur í samstarfi við Sorgarmiðstöð.
þú getur skoðað Hjartaknús hér.

Vinnustofa Sorgarmiðstöðvar 2026
Þann 25. september hittist hópur aðila úr ýmsum áttum til að taka þátt í vinnustofu sem var undirbúningur fyrir komandi stefnumótun Sorgarmiðstöðvar. Á fundinum var ...
Gulur september
Opnunarviðburður Sorgarmiðstöð tekur virkan þátt í skipulagningu og viðburðahaldi fyrir Gulan september, ásamt fjölmörgum stofnunum og félagasamtökum sem sameinast í að efla geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. ...
Samhugur einkenndi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþonið er einn af hápunktum ársins hjá okkur í Sorgarmiðstöð. Á hverju ári koma saman hlauparar sem hlaupa iðjulega fyrir ástvin sem þau hafa misst ...
Þorlákur FC tileinkar treyju ársins Sorgarmiðstöð
Knattspyrnufélagið Þorlákur Football Club hefur frá stofnun sinni verið meira en hefðbundið fótboltafélag. Félagið varð til úr sorg, vináttu og löngun til að halda minningu ...
Bækur fyrir börn í sorg
Sorgarmiðstöð fékk kærkomna heimsókn frá Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur Backsem tók að sér að þýða og flytja inn bækur og kennsluefni fyrir börn í sorg. Efnið ...
Sorgarhlaupið
Fyrsta Sorgarhlaupið tókst afar vel og erum við innilega þakklát öllum þeim sem tóku þátt, mættu á svæðið og komu að skipulagi og uppsetningu viðburðarins. ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira