Karlmenn og sorg

Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á vettvangi sem þessum.

Kvöldið var tileinkað karlmönnum í sorg þar sem markmiðið var að skapa öruggt rými með áherslu á samveru, samstöðu og minna á að enginn þarf að bera sorg eða erfiðleika einn. Viðburðurinn var sá fyrsti í röð viðburða á vegum Sorgarmiðstöðvarinnar sem ætlað er að efla stuðning og samfélag fyrir karla í sorg.

Hrannar Már var fundarstjóri en hann hefur komið að aðstoð fólks í sorg í um 15 ár. Hann leitaði sjálfur sér hjálpar eftir að hafa misst dóttur sína, Emblu Rut. Hrannar hefur víðtæka reynslu af stuðningi við syrgjendur, meðal annars foreldra sem misst hafa barn, stofnaði og stýrði starfi fyrir þau sem misst hafa ástvini vegna fíknar og hefur starfað sem sjálfboðaliði hjá Erninum við að styðja börn og unglinga í sorg.

Þeir Sigurjón Þórðarson, Arnar Sveinn Geirsson og Stefán Þór deildu sinni ólíku reynslu af missi og úrvinnslu sorgar. Frásagnir þeirra voru einlægar, áhrifamiklar og veittu vonandi þátttakendum bæði innsýn og von.

Sorgarmiðstöð vill þakka skipuleggjendum kærlega fyrir að sýna frumkvæði og leggja sitt af mörkum til að skapa mikilvægan vettvang fyrir karla í sorg. Einnig færum við öllum þeim sem mættu innilegar þakkir fyrir þátttökuna, hlýjuna og stuðninginn sem einkenndi kvöldið. Ljóst er að þörfin fyrir slíka samveru er mikil og hlökkum við til að halda áfram að byggja upp þetta mikilvæga starf á komandi misserum.

Karlmenn og sorg
Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á ...
Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira