Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum

 

Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á mikilvægi þess stuðnings sem veittur er syrgjendum.

Við hátíðlega athöfn afhenti Vilmundur Gíslason, forseti Rótarýklúbbs Straums, verðlaunin fyrir hönd klúbbsins til Kristínar Lilju, framkvæmdastjóra Sorgarmiðstöðvar. Þá kom fram að verðlaunin væru veitt fyrir mikilvægt stuðningsstarf við syrgjendur eftir ástvinamissi. Slík starfsemi sem og gildi Sorgarmistöðvar hafa afar mikla þýðingu fyrir þau sem orðið hafa fyrir missi, en einnig fyrir samfélagið allt.

Sorgarmiðstöð hefur frá stofnun sinni lagt áherslu á að skapa öruggt rými fyrir einstaklinga sem misst hafa ástvini. Verðlaunin eru því  viðurkenning á því mikilvæga samfélagslega hlutverki sem Sorgarmiðstöðin gegnir.

Rótarý er hreyfing fólks úr viðskipta- og atvinnulífi og opinberri þjónustu.  Rótarýhreyfing er alþjóðafélagsskapur  sem er   starfandi í meira en 200 löndum í öllum   heimsálfum. Lesa nánar hér

Karlmenn og sorg
Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á ...
Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira