Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar

Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem renna óskiptar til stuðnings við syrgjendur og starfsemi Sorgarmiðstöðvar.

Nemendur stóðu fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum í vikunni þar sem gleði, samstaða og samhugur voru í forgrunni. Með frumkvæði, sköpunargleði og öflugri þátttöku skólasamfélagsins tókst að safna þessari glæsilegu upphæð. Það er einstaklega dýrmætt fyrir Sorgarmiðstöð að finna stuðning og hlýhug frá ungu fólki sem vill leggja sitt af mörkum til mikilvægs málefnis. Við hjá Sorgarmiðstöð viljum færa nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar, nemendum skólans, starfsfólki og öllum þeim sem tóku þátt innilegar þakkir fyrir stuðninginn og fallegt framtak.

jjj
Vinnustofa Sorgarmiðstöðvar 2026
Þann 25. september hittist hópur aðila úr ýmsum áttum til að taka þátt í vinnustofu sem var undirbúningur fyrir komandi stefnumótun Sorgarmiðstöðvar. Á fundinum var ...
Gulur september
Opnunarviðburður Sorgarmiðstöð tekur virkan þátt í skipulagningu og viðburðahaldi fyrir Gulan september, ásamt fjölmörgum stofnunum og félagasamtökum sem sameinast í að efla geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. ...
Samhugur einkenndi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþonið er einn af hápunktum ársins hjá okkur í Sorgarmiðstöð. Á hverju ári koma saman hlauparar sem hlaupa iðjulega fyrir ástvin sem þau hafa misst ...
Þorlákur FC tileinkar treyju ársins Sorgarmiðstöð
Knattspyrnufélagið Þorlákur Football Club hefur frá stofnun sinni verið meira en hefðbundið fótboltafélag. Félagið varð til úr sorg, vináttu og löngun til að halda minningu ...
Bækur fyrir börn í sorg
Sorgarmiðstöð fékk kærkomna heimsókn frá Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur Backsem tók að sér að þýða og flytja inn bækur og kennsluefni fyrir börn í sorg. Efnið ...
Sorgarhlaupið
Fyrsta Sorgarhlaupið tókst afar vel og erum við innilega þakklát öllum þeim sem tóku þátt, mættu á svæðið og komu að skipulagi og uppsetningu viðburðarins. ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira