Að missa náinn ástvin er án efa eitthvert mesta áfall sem börn og unglingar geta orðið fyrir. Slíkt áfall getur fylgt börnum/unglingum ævina á enda og því nauðsynlegt að hjálpa þeim að vinna vel úr missinum svo áfallið verði ekki hamlandi seinna meir. Fagleg aðstoð, fjölskyldan og að hitta aðra krakka/unglinga sem deila reynslu er oft mikil hjálp.
Sorgarmiðstöð býður upp á námskeið/stuðningshópastarf fyrir börn og unglinga 6 – 15 ára sem hafa misst náinn ástvin. Það er hægt að skrá sig hvenær sem er og er farið af stað með námskeið/hóp þegar hann er orðinn fullskipaður.
Vegna aukinnar aðsóknar óskar Sorgarmiðstöð eftir því að þau sem skrá börn sín á námskeið greiði staðfestingargjald til að tryggja þátttöku. Staðfestingargjald á að greiða eftir að námskeiðshaldari hefur haft samband og staðfest skráningu viðkomandi með samtali.