Hópastarf ungmenni 16-19 ára

Að missa náinn ástvin er án efa eitthvert mesta áfall sem hægt er að verða fyrir. Slíkt áfall getur fylgt manni ævina á enda og því nauðsynlegt að reyna vinna vel úr missinum svo áfallið verði ekki hamlandi seinna meir. Fagleg aðstoð, fjölskyldan og að hitta önnur ungmenni sem deila reynslu er oft mikil hjálp.

Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningshópastarf fyrir ungmenni sem hafa misst náinn ástvin. Stuðningshópastarfið er í sex skipti og ávallt á sama tíma á sama degi. Það er hægt að skrá sig hvenær sem er og er farið af stað með hóp þegar hann er orðinn fullskipaður.

Vegna aukinnar aðsóknar óskar Sorgarmiðstöð eftir því að þau sem skrá sig í stuðningshópastarf greiði staðfestingargjald til að tryggja þátttöku. Staðfestingargjald á að greiða eftir að hópstjórar hafa staðfest skráningu viðkomandi með samtali.

Markmið:
Að fræðast um sorg og sorgar viðbrögð, tengist öðrum í sömu stöðu og upplifa lærdóm af eigin reynslu. Allir taka þátt útfrá eigin forsendum og er aðalatriðið að mæta á staðinn.
Nálgunin fer fram í gegnum fræðslu og umræðu og er lögð er áhersla á trúnað, traust og  tengsl.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira