Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

Systkinamissir

Að missa systkini er mikið áfall og oft fylgir slík reynsla fólki ævina á enda. Það er því nauðsynlegt að vinna vel úr sorginni svo áfallið verði ekki hamlandi seinna meir. Fagleg aðstoð, fjölskyldan, vinir og að hitta aðra sem deila reynslu er oft mikil hjálp.

Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningshóp fyrir þau sem misst hafa systkini. Stuðningshópastarfið er í fimm skipti og ávallt á sama tíma á sama degi. Hægt er að skrá sig í stuðningshóp hvenær sem er og er farið af stað með hóp þegar hann er orðinn fullskipaður.

Vegna aukinnar aðsóknar óskar Sorgarmiðstöð eftir því að þau sem skrá sig í stuðningshópastarf greiði staðfestingargjald til að tryggja þátttöku. Staðfestingargjald á að greiða eftir að hópstjórar hafa staðfest skráningu viðkomandi með samtali.

ATH: Ef þú hefur misst systkini vegna fíknar eða í sjálfsvígi gæti hentað betur að skrá sig í hópastarf fyrir þann missi þar sem þar er að auki sértæk úrvinnsla í kringum sorgina. Það er alltaf velkomið að heyra í okkur og fá ráð hvaða hópastarf hentar hverjum og einum.

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira