Sorgarmiðstöð býður upp á margvísleg fræðsluerindi og er leitast við að bjóða upp á eitthvað fyrir alla syrgjendur. Sorgarmiðstöð hefur meðal annars boðið upp á erindi fyrir þau sem hafa misst ástvin skyndlilega, fyrir þau sem hafa misst ástvin úr veikindum, erindi um óuppgerða og gamla sorg, erindi um að missa ástvin í sjálfsvígi, að missa ástvin úr fíkn og margt margt fleira.
Öll erindi eru auglýst á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar undir dagskrá.
Fyrstu skref í sorg
Á um það bil mánaða fresti býður Sorgarmiðstöð upp á erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin. Erindið heitir Fyrstu skref í sorg og er þar leitast við að veita fólki grunnfræðslu um sorg og sorgarviðbrögð, auka skilning þeirra á sorgarferlinu og þannig styðja þau í að finna jafnvægi í daglegu lífi eftir ástvinamissi. Eftir fræðsluna er stutt kynning á þjónustu Sorgarmiðstöðvar.
Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið til að tryggja pláss og er hámarksfjöldi í hvert skipti.
Hægt er að skoða hvenær næsta erindi er á dagskrá og skrá sig hér
Syrgjendum stendur til boða að taka aðstandanda með sér á erindið og getur verið mjög gott fyrir nánasta aðstandanda að koma með á erindi og fræðast um sorgina og sorgarferlið og geta þá stutt betur við bakið á sínum ástvin.
Rafrænt
Einnig er Sorgarmiðstöð að vinna að því að birta erindin okkar á heimasíðunni. Hægt er að nálgast þau erindi sem hafa farið í birtingu með því að smella hér