Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

Erindi og ráðstefnur

Hér munum við birta ráðstefnur og fræðsluerindi sem vonandi gagnast syrgjendum og aðstandendum þeirra.

Að missa ástvin eftir veikindi

Það er erfið lífsreynsla að missa ástvin. Þegar ástvinur deyr í kjölfar veikinda er ýmislegt í undanfaranum sem getur haft áhrif á hugsanir og líðan í úrvinnslu sorgarinnar. Það getur verið hjálplegt að gera sér grein fyrir hvaða þættir það eru sem hafa áhrif og hvað er eðlilegt að upplifa í veikindunum og eftir missinn. Í erindinu verður fjallað um þessa helstu þætti og bjargráð sem geta nýst okkur í sorgarúrvinnslunni.

Lóa Björk Ólafsdóttir flytur erindið en hún er hjúkrunarfræðingur og hefur sérhæft sig á sviði líknarmeðferðar. Lóa vann í mörg ár hjá Heru, sem er sérhæfð líknarþjónusta í heimahúsum, og hefur því langa reynslu af því að vinna með fjöskyldum sem takast á við erfið veikindi. Lóa sinnir einnig stuðningshópastarfi í Sorgarmiðstöð.

Að missa ástvin skyndilega

Það er sársaukafullt að missa ástvin skyndilega. Okkur er ýtt út í úrvinnslu tilfinninga sem virðast oft á tíðum stjórnlausar, sérstaklega í byrjun. Við þurfum mikinn stuðning og utanumhald frá okkar nánustu og jafnvel fagaðila líka. Við þurfum að hlúa vel að okkur og reyna nýta þau bjargráð sem geta gagnast okkur í sorgarferlinu.
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur flytur erindið Að missa ástvin skyndilega”. Hún hefur reynslu af skyndilegum ástvinamissi og sinnir stuðningshópastarfi í Sorgarmiðstöð. Í erindinu er farið yfir helstu atriði sem nýtast í sorgarúrvinnslunni og hvernig við getum styrkt okkur eða okkar nánustu sem best í því ferli.

Þegar gleðin breytist í sorg; fósturmissir

Hún Soffía Bæringsdóttir tók aftur upp erindið sitt þar sem fjallað er um sorgina sem fylgir missi á meðgöngu undir 12 vikum. Sorgin sem er svo vanmetin og ósýnileg.
Soffía er fjölskyldufræðingur MA og starfar sem slíkur við para- og fjölskyldumeðferð. Hún er einnig doula og hefur áralanga reynslu af því að styðja við nýja foreldra. Soffía hefur reynslu af sárum missi og sinnir stuðningshópastarfi í Sorgarmiðstöð.

Að syrgja ástvin sem notaði vímuefni

Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir fjallar um þróun vímuefnavanda, þá krafta sem þurfa að liggja til grundvallar hegðunarbreytingum, sjúkdómshugtakið og sorgarferlið og þær tilfinningar sem mögulega bærast innra með fólki sem missir ástvin vegna afleiðinga vímuefnanotkunar.

Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir er með sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma ásamt því að vera með meistara- og doktorsgráðu í geðhjúkrun frá Washington University. Hún hefur starfað sem hjúkrunardeildarstjóri fíknigeðdeildar geðsviðs og deildarstjóri göngudeildar geðþjónustu Landspítala og starfar nú í Heilbrigðisráðuneytinu ásamt því að vera faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar í sjálfboðavinnu. Hún er eftirsóttur fyrirlesari og hefur meðal annars haldið erindi um hjúkrun einstaklinga með fíknivanda, skaðaminnkun o.fl.

 Að missa barnabarn

Að missa barnabarn er erfið lífsreynsla. Þú þarft að hlúa að barni þínu eða tengdabarni í sorg en berð jafnframt eigin sorg sem fær lítið pláss. Þú situr eftir með brostið hjarta og spurningar sem enginn getur svarað.
Kristín Kristjánsdóttir djákni flytur fræðsluerindið fyrir þau sem hafa misst barnabarn. Hún hefur víðtæka reynslu af stuðningi við syrgjendur og er með diplómanám í sálgæslu og handleiðslu. Hún  hefur í mörg ár leitt stuðningshópa og stýrir nú hópastarfi í Sorgarmiðstöð. Kristín hefur einnig reynslu af sárum missi en hún missti dóttur sína árið 1996 sem var langveik og  barnabarn árið 2010 af slysförum.

A talk for those who have recently lost a loved one

In this talk, Pálína Georgsdóttir talks about grief and grief responses. Grief and complicated feelings are normal responses to loss. Grief is part of the human experience and needs a proper channel. It is essential to know that grief can look different for each individual. By educating the bereaved about grief and grief response and giving them advice, we strive to increase people’s understanding of the grief process and thus support them in finding balance in their daily lives after losing a loved one.

Erindi fyrir börn í sorg – 10 ára og eldri

Sigríður Kristín djákni flutti erindi í Sorgarmiðstöð fyrir börn í sorg þar sem farið var myndrænt yfir sorgarferli barna. Erindið er fyrir börn á aldrinum 10 ára og eldri. Sigríður Kristín hefur mikla reynslu af því að ræða þessi mál sem okkur foreldrum reynist oft erfitt. Nálgun hennar er opin, hlý og þægileg. Sigríður teiknar gjarnan upp það sem hún er að ræða og heldur þannig athygli allra vel. Nálgun hennar er ekki trúarleg svo þetta á að henta öllum börnum.

Erindi fyrir börn í sorg – 10 ára og eldri (reynslusaga)

Arnar Sveinn Geirsson knattspyrnumaður segir frá reynslu sinni en hann missti móður sína aðeins 11 ára gamall og vann ekki úr sorginni fyrr en löngu seinna.

Erindi fyrir börn í sorg – 5-10 ára

Sigríður Kristín djákni flutti erindi í Sorgarmiðstöð fyrir börn í sorg þar sem farið var myndrænt yfir sorgarferli barna. Erindið er fyrir börn á aldrinum 5-10 ára. Sigríður hefur mikla reynslu af því að ræða þessi mál sem okkur foreldrum reynist oft erfitt. Nálgun hennar er opin, hlý og þægileg. Hún teiknar gjarnan upp það sem hún er að ræða og heldur þannig athygli allra. Nálgun hennar er ekki trúarleg svo þetta erindi á að henta öllum börnum.

Erindi fyrir börn í sorg – 5-10 ára (Tilfinninga Blær)

Aron Már missti systur sína af slysförum og gerði í framhaldi af því barnabók um tilfinningar ásamt Hildi Skúladóttur og Orra Gunnlaugssyni. Bókin heitir Tilfinninga Blær og fjallar um mikilvægi þess að ræða opinskátt um tilfinningarnar sem við upplifum. Aron Mola les upp úr bókinni.

Ráðstefna Sorgarmiðstöðvar um skyndilegan missi

Hvað getum við gert betur fyrir þau sem missa ástvin skyndilega? Ráðstefnan er fyrir syrgjendur, aðstandendur og alla þá fagaðila sem vinna að velferð þeirra.

Ráðstefnan var haldin 31. ágúst 2022. Freyr Eyjólfsson er fundarstjóri.

Erindi:

  • Setning ráðstefnu Alma Möller landlæknir og verndari Sorgarmiðstöðvar
  • Sorgarorlof – tilurð og hagnýtar upplýsingar Guðmundur Ingi Guðbrandsson Félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Tölur og staðreyndir Anton Örn Karlsson deildarstjóri hjá Hagstofunni
  • Á vettvangi skyndilegs andláts Stefnir Snorrason varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
  • Sálræn fyrsta hjálp Álfheiður Svana Kristjánsdóttir og Elfa Dögg Leifsdóttir verkefnastjórar hjá Rauða krossinum
  • Viðbragðsáætlun á vinnustað Inga Berg Gísladóttir verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis
  • Reynsla af skyndilegum missi Kolbeinn Elí Pétusson aðstandandi
  • Hjálp48 verkefnið Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir fagstjóri Sorgarmiðstöðvar
  • Pallborðsumræður

Hér er hægt að nálgast það efni sem var afhent á ráðstefnunni

Um 450 einstaklingar sóttu ráðstefnuna um 30% voru í sal en 70% streymi. Eftir ráðstefnuna var ráðstefnugestum sendur spurningalisti eða mat á ráðstefnunni. Almenn ánægja var með ráðstefnuna  bæði efnistök, fyrirlesara og framkvæmd. Af þeim sem svörðuðu matinu voru 80% gesta af höfuðborgarsvæðin, um 57% þeirra sem fylgdust með ráðstefnunni gerðu það vegna starfs síns, 11% höfðu sjálfir reynslu af skyndilegum missi og 29% hlýddu á ráðstefnuna af bæði vegna faglegs áhuga og vegna reynslu af skyndilegum missi, 3% nefndu aðrar ástæður.

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira