26/04/2021
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Barnsmissir á meðgöngu – lokað stuðningshópastarf

Hópastarf fyrir foreldra og einstaklinga sem hafa orðið fyrir barnsmissi á meðgöngu og í/eftir fæðingu fer af stað.
Haft verður samband við alla sem hafa skráð sig þegar þeirra hópastarf hefst. Stuðningshópastarfið er í sex skipti og ávallt á sama tíma á sama degi.

Ef hópastarfið er fullt eða farið af stað er samt gott að skrá sig því um leið og ákveðnum fjölda er náð reynum við að fara af stað með nýjan stuðningshóp.

Hægt er að skrá sig hér

Það kostar ekkert að koma í hópastarf en það er nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja þátttöku.

Hópastarfið er frá kl. 20:15 – 21:45

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira