23/03/2022
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st.Jó

Barnsmissir – lokað hópastarf

Hópastarf fyrir hjón og einstaklinga sem hafa misst barn fer af stað í mars.

Haft verður samband við alla sem hafa skráð sig þegar þeirra þeirra hópur er að fara af stað.

Ef hópastarfið er fullt eða farið af stað er samt gott að skrá sig því um leið og ákveðnum fjölda er náð reynum við að fara af stað með nýjan stuðningshóp.

Hægt er að skrá sig hér

Ef þú hefur misst barn vegna fíknar eða í sjálfsvígi gæti hentað betur að skrá sig í hópastarf fyrir þann missi þar sem þar er að auki sértæk úrvinnsla í kringum sorgina. Það er alltaf velkomið að heyra í okkur og fá ráð hvaða hópastarf hentar hverjum og einum.

Það kostar ekkert að koma í hópastarf en það er nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja þátttöku.


Hópastarfið hefst kl. 18:15

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira