Lokað frá 23. desember til 3. janúar. Allar pantanir sem berast á þeim tíma verða afgreiddar eftir 3. janúar. Gleðilega hátíð

18/09/2024
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Foreldramissir – lokað hópastarf

Hópastarf fyrir þau sem misst hafa foreldri hefst í september. Haft verður samband við alla sem hafa skráð sig þegar þeirra hópur er að fara af stað.

Ef hópastarfið er fullt eða farið af stað er samt gott að skrá og fara á biðlista fyrir næsta hópastarf.

Nánari upplýsingar og skráning hér en það er nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja þátttöku.

Vegna aukinnar aðsóknar óskar Sorgarmiðstöð eftir því að þau sem skrá sig í stuðningshópastarf greiði staðfestingargjald til að tryggja þátttöku. Staðfestingargjald á að greiða eftir að hópstjórar hafa staðfest skráningu viðkomandi með samtali.

ATH: Ef þú hefur misst foreldri vegna fíknar eða í sjálfsvígi gæti hentað betur að skrá sig í hópastarf fyrir þann missi þar sem þar er að auki sértæk úrvinnsla í kringum sorgina. Það er alltaf velkomið að heyra í okkur og fá ráð hvaða hópastarf hentar hverjum og einum.


Hópastarfið hefst kl. 18:00

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira