september til október
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Foreldramissir – lokað hópastarf

Hópastarf fyrir fólk sem misst hefur foreldri fer af stað í september.
Haft verður samband við alla sem hafa skráð sig þegar þeirra hópur er að fara af stað. Stuðningshópastarfið er í sex skipti og ávallt á sama tíma á sama degi.

Það er komin full skráning í stuðningshópastarfið í september en við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst því um leið og ákveðnum fjölda er náð reynum við að fara af stað með nýjan stuðningshóp.

Hægt er að skrá sig hér

Ef þú hefur misst foreldri vegna fíknar eða í sjálfsvígi gæti hentað betur að skrá sig í hópastarf fyrir þann missi þar sem þar er að auki sértæk úrvinnsla í kringum sorgina. Það er alltaf velkomið að heyra í okkur og fá ráð hvaða hópastarf hentar hverjum og einum.

Það kostar ekkert að koma í hópastarf en það er nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja þátttöku.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira