03/11/2022
Sorgarmiðstöð - Lífsgæðasetur st. Jó

Hópastarf ungmenni 16-18 ára og kynning

Hópastarf fyrir ungmenni 16-18 ára sem misst hafa náinn ástvin fer af stað 3. nóvember. Haft verður samband við alla sem hafa skráð sig þegar þeirra hópastarf hefst. Einnig er öllum boðið að koma í einstaklingsamtal áður en hópastarfið byrjar.

Nánari upplýsingar og skráning hér en það er nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja þátttöku.

Áður en hópastarfið hefst verður stutt kynning fyrir foreldra og forráðamenn. Við hvetjum ykkur þvi til að mæta með ungmennum í hús fyrsta daginn. Fyrir þau sem ekki komast verður kynningunni einnig streymt. Sjá streymislink hér

Vegna aukinnar aðsóknar óskar Sorgarmiðstöð eftir því að þau sem skrá sig í stuðningshópastarf greiði staðfestingargjald að upphæð 3.000 kr. Staðfestingargjaldið er endurgoldið í formi bóka í lok hópastarfs. Staðfestingargjald á að greiða eftir að hópstjórar hafa staðfest skráningu viðkomandi með samtali.


Kynning fyrir foreldra/forráðamenn og aðra áhugasama hefst kl. 17:45

Hópastarfið hefst þegar kynningu er lokið, upp úr kl. 18:00

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira