Við höfum skapað nýja vöru sem er ætluð til fjáröflunar fyrir kjarnastarfsemi Sorgarmiðstöðvar. Varan er Hjartaknúsið sem er skapað í samvinnu við Valdísi Ólafsdóttur keramikhönnuð sem hannar undir merkinu Dísa – Litlu hlutir lífsins.
Hjartaknúsið okkar er lyklakippa með fallegu keramik-hjarta og skilaboðunum “knús”. Það er því hægt að bera faðminn og hlýjuna með sér í gegnum daginn, eða gefa öðrum knús sem á þurfa að halda. Knúsið er hugsað sem skilaboð um kærleika og vinahug.
Hjörtun eru handgerð og því hvert hjarta einstakt.
Hægt er að versla hjörtun í vefverslun okkar hérna.
