Sorgartrén tendruð á aðventunni

Sorgartrén urðu tvö í fyrra, eitt stendur nú í Hellisgerði í Hafnarfirði og annað í Lystigarðinum á Akureyri. Þau voru bæði tendruð við fallegar athafnir síðastliðna helgi, eða laugardaginn 6. desember á Akureyri og sunnudaginn 7. desember í Hellisgerði.

Á Akureyri var gengið frá Kaffi Lyst saman að trénu og sungu nokkrir meðlimir úr Gospelkór Glerárkirkju við tendrunina.

Í Hafnarfirði var gengið frá Lífsgæðasetrinu í átt að Hellisgerði. Þar tók barnakór Hafnarfjarðarkirkju á móti fólki með söng og Sr. Matthildur Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá Erninum, var með hugljúfa hugvekju um jólin og sorgina. Síðan var gengið saman að sorgartrénu en nú er komið skilti í Hellisgerði til að merkja tréð og þar má einnig finna leiðir til að nálgast góð ráð fyrir syrgjendur og aðstandendur syrgjenda.

Frá tendruninni í Hellisgerði

Frá tendruninni á Akureyri

Karlmenn og sorg
Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á ...
Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira