Hildur Brynja Sigurðardóttir

Hilldur er menntaður hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir frá Háskóla Íslands ásamt því að hafa lokið MA diplómanámi í jákvæðri sálfræði. Sorginni kynntist hún fyrst ung að árum þegar hún missti pabba sinn skyndilega. Árið 2023 missti hún síðan 11 ára dóttur eftir langvinn veikindi.

Sigurjón Þórðarson

Sigurjón starfar sem mannauðssérfræðingur hjá CCP. Hann kláraði MBA frá Háskólanum í Reykjavík í markþjálfun með áherslu á leiðtogahæfni, hefur MA diplómu í jákvæðri sálfræði frá Háskóla Íslands og er auk þess kennari og matreiðslumeistari. Sigurjón missti eiginkonu sína árið 2020.

Jenný Valdimarsdóttir

Jenný starfar sem hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu (KAON) og sinnir einnig hópastarfi hjá Sorgarmiðstöð. Hún er með diplómu í krabbameinshjúkrun og hefur starfað við þá hjúkrun frá árinu 2007, lengst af við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Kolbeinn Elí Pétursson

Kolbeinn starfar við fjármálagreiningu og áætlanagerð hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP. Hann er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá HR og M.A. gráðu í hagnýttri hagfræði frá HÍ. Kolbeinn missti móður sína ungur að árum úr fíknisjúkdóm og hefur sjálfur upplifað batann sem er fólginn í því að vinna úr slíku áfalli. Hann kom fram í þáttunum […]

Anna Dagmar Arnarsdóttir

Anna Dagmar er  viðskiptafræðingur frá HÍ  og með MBA með áherslu á mannauðsstjórnun frá HR og hefur einnig lokið MA diplómanámi í Jákvæðri sálfræði og Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá EHÍ.Anna Dagmar missti eiginmann sinn skyndilega sumarið 2019.Anna Dagmar hefur setið í stjórn Ljónshjarta síðan 2022.

Hólmfríður Anna Baldursdóttir

Anna hefur starfað hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, á Íslandi og víða erlendis um árabil. Hún starfar nú sem kynningarstjóri hjá höfuðstöðvum UNICEF í New York. Anna missti barn eftir 34 vikna meðgöngu. Hún úskrifaðist úr sálgæslunámi Endurmenntunar Háskóla Íslands árið 2022. Anna er í stjórn Gleym mér ei.

Berglind Arnardóttir

Berglind Arnardóttir er menntaður viskiptafræðingur. Hún hefur starfað í áratug við markaðsmál fyrirtækja og sinnt ýmsum sjálfboðastörfum í íþróttahreyfingunni. Berglind missti ungan son sinn af slysförum árið 2021.