Námskeið fyrir skólasamfélagið

Sorgarmiðstöð var með námskeið um sorg barna í skólasamfélaginu fyrir kennara Kópavogsbæjar.

Á námskeiðinu fengu kennarar fræðslu, reynslusögur, fóru í hópavinnu og tóku þátt í umræðum. Það er mikilvægt fyrir kennara og starfsfólk grunnskólanna að fá verkfæri í  hendur til að geta tekist betur á við sorg barna í skólasamfélaginu. 

Ína Lóa og Karen Björk sem eru kennarar með reynslu af því að missa nákominn og vera með börn í sorg halda utan um fyrirlestra og námskeið Sorgarmiðstöðvar sem er ætlað skólasamfélaginu.

Umsagnir þátttakanda eftir námskeiðið voru að það væri vel heppnað og mjög áhugavert og þarft fyrir kennara og starfsfólk.

Fundur með heilbrigðisráðherra
Fulltrúar Sorgarmiðstöðvar áttu góðan fund með Ölmu Möller heilbrigðisráðherra 26. júní síðastliðinn þar sem farið var yfir hagsmunamál syrgjenda. Það er gott að Sorgarmiðstöð fái ...
Aukin réttur til sorgarleyfis samþykktur
Alþingi samþykkti á dögunum frumvarp um breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis sem styrkir enn frekar stöðu ...
Landlæknir
Landlæknir í heimsókn
Föstudaginn 6. júní kíkti María Heimisdóttir núverandi landlæknir í heimsókn í Sorgarmiðstöð. Þetta var góður fundur og mikill heiður að fá hana en þetta var ...
Fjölsótt námskeið fyrir jafningja
Fjöldi manns á vegum Sorgarmiðstöðvar sóttu jafningjanámskeið hjá Krabbameinsfélaginu nú á dögunum. Námskeiðinu er ætlað að efla jafningjaþjónustu Sorgarmiðstöðvar. Jafningjaþjónustan snýr að því að bjóða ...
Myndin af pabba er komin upp á hillu
Þegar barnsfaðir Ingu Helgu Sveinsdóttur lést eftir harða baráttu við krabbamein ákvað hún strax að sækja alla þá aðstoð sem hún mögulega gæti fyrir börnin ...
Ný stjórn Sorgarmiðstöðvar
Á aðalfundi 29. apríl síðastliðinn var kosið til nýrrar stjórnar Sorgarmiðstöðvar sem mun sitja frá 2025 -2026. Berglind Arnardóttir mun halda sæti sínu sem formaður ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira