Vel heppnuð erindi á Akureyri í byrjun árs

Við byrjuðum árið af krafti og með sérstaka áherslu á þjónustuna á Norðurlandi með því að bjóða upp á þrjú ólík erindi á Akureyri.

Þann 26. janúar var Sindri Geir Óskarsson með erindið okkar Fyrstu skref í sorg, þann 12. febrúar kom Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir og hélt erindi um skyndilegan ástvinamissi og þann 12. mars kom svo Ína Lóa Sigurðardóttir og hélt erindi um ástvinamissi eftir veikindi. Vel var sótt á öll erindin og vonum við að sem flestir sem búa á þessu svæði gátu nýtt sér þjónustuna.

Vert er að fylgjast vel með dagskrá Sorgarmiðstöðvar þegar næstu erindi verða auglýst.

Karlmenn og sorg
Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á ...
Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira