Einlægni í erindi Lilju Cederborg

Missir breytir lífinu á djúpstæðan hátt. Hann getur skilið eftir tómarúm og spurningar um tilgang og framtíð. Í þessum fyrirlestri er sjónum beint að lífinu eftir missi með því að skoða hvernig hægt er að finna ljósið smám saman aftur.

Lilja Cederborg frá KVAN hélt erindi hjá Sorgarmiðstöð fimmtudaginn 12. mars en erindið bar yfirskriftina “Lífið eftir missi – Hamingjan í hversdagsleikanum”

Fjallaði hún þar meðal annars um hamingju í hversdagsleikanum og hvernig hún birtist oft í litlu augnablikunum sem við tökum gjarnan sem sjálfsögðum hlut. 

Á erindinu mættust fagleg þekking og persónuleg reynsla en Lilja Cederborg missti son sinn barnungan árið 2022 og var því að gefa af sér speglun af eigin reynslu og bjargráðum.

Vel var sótt á erindið og skein einlægni Lilju skært í hugljúfu andrúmslofti.

Einlægni í erindi Lilju Cederborg
Missir breytir lífinu á djúpstæðan hátt. Hann getur skilið eftir tómarúm og spurningar um tilgang og framtíð. Í þessum fyrirlestri er sjónum beint að lífinu ...
Vel heppnuð erindi á Akureyri í byrjun árs
Við byrjuðum árið af krafti og með sérstaka áherslu á þjónustuna á Norðurlandi með því að bjóða upp á þrjú ólík erindi á Akureyri. Þann ...
Hjartaknús
Hjartaknús Sorgarmiðstöðvar
Við höfum skapað nýja vöru sem er ætluð til fjáröflunar fyrir kjarnastarfsemi Sorgarmiðstöðvar. Varan er Hjartaknúsið sem er skapað í samvinnu við Valdísi Ólafsdóttur keramikhönnuð ...
Kærkominn styrkur í desember frá Kvennastúkum Akureyris
Kvennastúkurnar Auður og Laufey á Akureyri færðu Hjálp48 – Sorgarmiðstöð á Akureyri styrk í desember að fjárhæð kr. 1.230.000 til þess að þýða og gefa ...
Hugljúf stund í leiðiskransagerð
Mánudaginn 15. desember buðum við upp á leiðiskransanámskeið fyrir syrgjendur í Lífsgæðasetrinu. Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir kom til okkar líkt og fyrri ár og kenndi helstu ...
Styrkur í jólaþorpinu
Helgina 5.-7. desember var Sorgarmiðstöð með bás í jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er annað árið sem við prófum að vera með viðveru í jólaþorpinu ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira