Fyrsta Sorgarhlaupið tókst afar vel og erum við innilega þakklát öllum þeim sem tóku þátt, mættu á svæðið og komu að skipulagi og uppsetningu viðburðarins.
Dagurinn lék sannarlega við okkur, veðrið var einstaklega gott og stemningin góð. Það var dýrmætt að sjá fólk á öllum aldri koma saman, hreyfa sig, njóta samverunnar og styðja við mikilvægt málefni. Markmið Sorgarhlaupsins var að skapa vettvang þar sem fólk gat komið saman og sýnt stuðning, en með viðburðinum vildum við einnig skapa pláss fyrir gleði.






Sérstakar þakkir fá Kaffi Flóra, Danól og MS fyrir að styrkja okkur með léttum veitingar sem nutu mikilla vinsælda. Einnig viljum við þakka Evu Steinsen og Ástu Sigþórsdóttur sem glöddu yngstu gestina með andlitsmálun og hjálpuðu til við að gera daginn enn eftirminnilegri.

Við erum full þakklætis fyrir þann stuðning sem Sorgarmiðstöðin finnur fyrir og vonumst til þess að geta skapað enn fleiri tækifæri til þess að koma saman í framtíðinni.
Íþróttaálfurinn og Solla stirða héldu stemningunni uppi ☀️


Gleðin heldur síðan áfram þar sem Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er næst á dagskrá. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að taka þátt, hvort sem þeir vilja hlaupa, skokka eða ganga, til að slást í hópinn okkar. Með þátttöku sinni styður fólk við mikilvægt starf í þágu syrgjenda💙
