Heiðursbollinn 2022

Sorgarmiðstöð veitir í annað sinn viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu syrgjenda á Íslandi. Að þessu sinni er það félags- og vinnumarkaðsráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson sem hlýtur Heiðursbollann 2022. Bollinn er unnin af Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur keramikhönnuði og voru það formaður Karólína Helga Símonardóttir og framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar Ína Lóa Sigurðardóttir sem afhentu viðurkenninguna.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson hlýtur viðurkenningu fyrir að kom á lagasetningu um sorgarorlof fyrir foreldra sem missa börn sín. Hann lagði frumvarpið fram sl. vor sem var samþykkt einróma og tóku lögin gildi í janúar sl.

Lögin tryggja foreldrum sem missa barn sitt rétt til sorgarleyfis í sex mánuði sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap. Einnig er gert ráð fyrir að foreldrar geti nýtt rétt sinn til sorgarleyfis samhliða skertu starfshlutfalli og einnig yfir lengra tímabil.

Guðmundur Ingi heimsótti Sorgarmiðstöð að þessu tilefni og þáði veitingar sem Gulli Arnar styrkti Sorgarmiðstöð um. Hann nefndi í tilefni dagsins hve miklu máli það skiptir að sjá sorgarleyfi loks verða að veruleika og hve mikilvægt það væri að geta tekið betur utan um fjölskyldur sem missa börn sín með þessu móti.

Með viðurkenningu þessari vill Sorgarmiðstöð þakka Guðmundi Inga fyrir hans mikilvæga starf í þágu syrgjenda og fyrir að vekja athygli á og staðfesta með þessum hætti mikilvægi sorgarúrvinnslu sem lið í eflingu lýðheilsu samfélagsins. 

Einlægni í erindi Lilju Cederborg
Missir breytir lífinu á djúpstæðan hátt. Hann getur skilið eftir tómarúm og spurningar um tilgang og framtíð. Í þessum fyrirlestri er sjónum beint að lífinu ...
Vel heppnuð erindi á Akureyri í byrjun árs
Við byrjuðum árið af krafti og með sérstaka áherslu á þjónustuna á Norðurlandi með því að bjóða upp á þrjú ólík erindi á Akureyri. Þann ...
Hjartaknús
Hjartaknús Sorgarmiðstöðvar
Við höfum skapað nýja vöru sem er ætluð til fjáröflunar fyrir kjarnastarfsemi Sorgarmiðstöðvar. Varan er Hjartaknúsið sem er skapað í samvinnu við Valdísi Ólafsdóttur keramikhönnuð ...
Kærkominn styrkur í desember frá Kvennastúkum Akureyris
Kvennastúkurnar Auður og Laufey á Akureyri færðu Hjálp48 – Sorgarmiðstöð á Akureyri styrk í desember að fjárhæð kr. 1.230.000 til þess að þýða og gefa ...
Hugljúf stund í leiðiskransagerð
Mánudaginn 15. desember buðum við upp á leiðiskransanámskeið fyrir syrgjendur í Lífsgæðasetrinu. Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir kom til okkar líkt og fyrri ár og kenndi helstu ...
Styrkur í jólaþorpinu
Helgina 5.-7. desember var Sorgarmiðstöð með bás í jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar. Þetta er annað árið sem við prófum að vera með viðveru í jólaþorpinu ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira