Anna Guðný nýr verkefnastjóri Hjálp48

Anna Guðný Hermannsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri yfir verkefninu Hjálp48 en hún hóf störf í júní 2024. Verkefnið Hjálp48 felur í sér þróun, prófun og innleiðingu á stuðningi við aðstandendur eftir skyndilegan missi ástvinar. Ef fólk deyr heima eða utan spítala þá er ekkert “kerfi” sem grípur aðstandendur, sem er ólíkt því sem gerist ef ástvinur deyr á stofnun. Hjálp48 á að verða það kerfi.

Undirbúningsvinna og mótun verkefnis hefur staðið yfir í nokkurn tíma en Sorgarmiðstöð hefur fundið sterkt ákall frá syrgjendum eftir þessari þjónustu. Hjálp48 er hugsað sem teymisvinna fagaðila og jafningja. Verkefnið byggist á því að stíga inn í aðstæður innan 48 stunda frá andláti, með stuðningi við syrgjendur og með leiðbeiningum um viðeigandi úrræði eftir eðli missis. Byrjað verður að þróa verklagið og byggja upp þjónustuna fyrir þau sem missa í sjálfsvígi, en svo verður þjónustan yfirfærð á annan skyndilegan missi. Mikil vinna í undirbúningi er nú þegar hafin, en til að mynda hafa verið haldnar vinnustofur fyrir aðstandendur, fræðslu- og kynningarefni hefur verið skapað, hagsmunaaðilagreining gerð, verkefnaáætlun lögð fyrir og fundir haldnir með bæði hagsmunaaðilum og viðbragðsaðilum.

Anna Guðný segist hafa fylgst lengi með Sorgarmiðstöð og hafi strax haft áhuga á verkefninu Hjálp48, alveg frá því að hún heyrði af því á ráðstefnu Sorgarmiðstöðvar árið 2022.
,,Ég missti manninn minn skyndilega árið 2001 og þá voru aðrir tímar hvað varðar stuðning við syrgjendur. Ég var heppin og hafði mjög góðan stuðning fjölskyldu og vina auk þess sem mjög fær sjúkrahúsprestur og fjölskylduvinur studdi þétt við bakið á okkur í lengri tíma. Það eru ekki allir jafn lánsamir og ég og því veit ég hvað það er mikilvægt að til staðar sé eitthvað net sem grípur fólk strax. Ég hef fylgst með Sorgarmiðstöð byggjast upp og vaxa og dáðst að því ötula starfi sem þar er unnið.”

Anna Guðný er með mastersgráðu í sameindalíffræði og MPM mastersgráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. Hún hefur áður starfað sem verkefnastjóri hjá bæði Landsvirkjun og Bioeffect.

Frá stofnun hefur Sorgarmiðstöð unnið að því markmiði að bæta þjónustu við syrgjendur.

Vinnustofa Sorgarmiðstöðvar 2026
Þann 25. september hittist hópur aðila úr ýmsum áttum til að taka þátt í vinnustofu sem var undirbúningur fyrir komandi stefnumótun Sorgarmiðstöðvar. Á fundinum var ...
Gulur september
Opnunarviðburður Sorgarmiðstöð tekur virkan þátt í skipulagningu og viðburðahaldi fyrir Gulan september, ásamt fjölmörgum stofnunum og félagasamtökum sem sameinast í að efla geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. ...
Samhugur einkenndi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþonið er einn af hápunktum ársins hjá okkur í Sorgarmiðstöð. Á hverju ári koma saman hlauparar sem hlaupa iðjulega fyrir ástvin sem þau hafa misst ...
Þorlákur FC tileinkar treyju ársins Sorgarmiðstöð
Knattspyrnufélagið Þorlákur Football Club hefur frá stofnun sinni verið meira en hefðbundið fótboltafélag. Félagið varð til úr sorg, vináttu og löngun til að halda minningu ...
Bækur fyrir börn í sorg
Sorgarmiðstöð fékk kærkomna heimsókn frá Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur Backsem tók að sér að þýða og flytja inn bækur og kennsluefni fyrir börn í sorg. Efnið ...
Sorgarhlaupið
Fyrsta Sorgarhlaupið tókst afar vel og erum við innilega þakklát öllum þeim sem tóku þátt, mættu á svæðið og komu að skipulagi og uppsetningu viðburðarins. ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira