Gísli Örn leikari veitir Sorgarmiðstöð styrk

Í vikunni veitti Gísli Örn Garðarson leikari Sorgarmiðstöð styrk sem er hluti af ágóða sýningarinnar ,,Ég hleyp”. Leikarinn tók þá ákvörðun snemma á æfingarferlinu að gefa allar sínar tekjur til góðra málefna. 

Sýningin ,,Ég hleyp” fjallaði um mann sem byrjaði að hlaupa eftir barnsmissi. Hann gat ekki höndlað sorgina með öðrum hætti og á hlaupunum fannst honum hann vera léttur, frjáls og sterkur. Þannig gat hann tjáð sig um missinn, ranglætið og varnarleysið sem hrjáði hann. Í leikverkinu leitaði höfundurinn svara við því hvernig við getum lifað áfram eftir þá erfiðu sorg að missa barn. 

Sorgarmiðstöð þakkar Gísla Erni innilega fyrir veittan styrk og einnig fyrir gott samtal eftir sýningu hans þann 7. apríl sl. þar sem áhorfendum úr sal gafst kostur á að spyrja út í ferlið.

Karlmenn og sorg
Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á ...
Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira