Landlæknir

Landlæknir í heimsókn

Föstudaginn 6. júní kíkti María Heimisdóttir núverandi landlæknir í heimsókn í Sorgarmiðstöð. Þetta var góður fundur og mikill heiður að fá hana en þetta var í fyrsta skipti sem María kíkti í heimsókn til okkar en hún tók við landlæknisembættinu í febrúar 2025.

Landlæknir hefur verið verndari Sorgarmiðstöðvar og með því er áréttað að stuðningur við syrgjendur falli undir lýðheilsustarf og sé mikilvægur þáttur lýðheilsu. Embætti landlæknis og Sorgarmiðstöð hafa starfað saman frá stofnun Sorgarmiðstöðvar, meðal annars við gerð upplýsingaefnis, að vitundarvakningu og að forvarnarverkefnum í tengslum við sjálfsvíg.

Á fundinum með Maríu voru viðstaddar Kristín Lilja Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar, Anna Guðný Hermannsdóttir, verkefnastjóri H48, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, markaðsfulltrúi Sorgarmiðstöðvar og Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri Lífsbrúar.

Vinnustofa Sorgarmiðstöðvar 2026
Þann 25. september hittist hópur aðila úr ýmsum áttum til að taka þátt í vinnustofu sem var undirbúningur fyrir komandi stefnumótun Sorgarmiðstöðvar. Á fundinum var ...
Gulur september
Opnunarviðburður Sorgarmiðstöð tekur virkan þátt í skipulagningu og viðburðahaldi fyrir Gulan september, ásamt fjölmörgum stofnunum og félagasamtökum sem sameinast í að efla geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. ...
Samhugur einkenndi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþonið er einn af hápunktum ársins hjá okkur í Sorgarmiðstöð. Á hverju ári koma saman hlauparar sem hlaupa iðjulega fyrir ástvin sem þau hafa misst ...
Þorlákur FC tileinkar treyju ársins Sorgarmiðstöð
Knattspyrnufélagið Þorlákur Football Club hefur frá stofnun sinni verið meira en hefðbundið fótboltafélag. Félagið varð til úr sorg, vináttu og löngun til að halda minningu ...
Bækur fyrir börn í sorg
Sorgarmiðstöð fékk kærkomna heimsókn frá Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur Backsem tók að sér að þýða og flytja inn bækur og kennsluefni fyrir börn í sorg. Efnið ...
Sorgarhlaupið
Fyrsta Sorgarhlaupið tókst afar vel og erum við innilega þakklát öllum þeim sem tóku þátt, mættu á svæðið og komu að skipulagi og uppsetningu viðburðarins. ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira