Ný dögun hefur hætt starfsemi 

Ný dögun, eitt aðildarfélaga Sorgarmiðstöðvar hefur hætt starfsemi og þjónustan flust í Sorgarmiðstöð. 

Þetta eru tímamót því Ný dögun var elsta grasrótarfélagið á sviði sorgarúrvinnslu, stofnað 1987 af einstaklingum sem höfðu reynslu af sárum missi og takmörkuðum úrræðum. Markmiðið frá upphafi var að skapa vettvang til að styðja syrgjendur og þau sem vinna að velferð þeirra. Kjarnastarfsemin, nú í Sorgarmiðstöð, er fræðsla og samvera, stuðningshópastarf á jafningjagrunni og útgáfa fræðsluefnis. Ný dögun stóð einnig fyrir almennri fræðslu um sorg og sorgarviðbrögð í fjölmiðlum og á opinberum vettvangi, ásamt því að beita sér fyrir hagsmunum syrgjenda í ýmsum málum sem Sorgarmiðstöð gerir í dag.

Ný dögun átti stóran þátt í stofnun Sorgarmiðstöðvar því hana má rekja til vinnufundar sem Ný dögun hélt í tilefni af 30 ára starfsafmæli sínu, árið 2017. Yfirskrift hans var: „Hvað getum við gert betur í þjónustu við syrgjendur á Íslandi?“ Þar komu saman félög, stofnanir og einstaklingar á svið sorgarúrvinnslu sem lögðu til að stofnuð yrði miðstöð þar sem syrgjendur og aðrir gætu gengið að upplýsingum og þjónustu á sviði sorgarúrvinnslu á einum stað.

Við slit Nýrrar dögunar ánafnaði stjórn hennar eignum sínum til Sorgarmiðstöðvar. Sorgarmiðstöð þakkar innilega fyrir og vill nota tækifærið og þakka stjórn Nýrrar dögunar fyrir samfylgdina sl.5 ár og fyrir allt sitt mikilvæga frumkvöðlastarf í 36 ár.

Vinnustofa Sorgarmiðstöðvar 2026
Þann 25. september hittist hópur aðila úr ýmsum áttum til að taka þátt í vinnustofu sem var undirbúningur fyrir komandi stefnumótun Sorgarmiðstöðvar. Á fundinum var ...
Gulur september
Opnunarviðburður Sorgarmiðstöð tekur virkan þátt í skipulagningu og viðburðahaldi fyrir Gulan september, ásamt fjölmörgum stofnunum og félagasamtökum sem sameinast í að efla geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. ...
Samhugur einkenndi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþonið er einn af hápunktum ársins hjá okkur í Sorgarmiðstöð. Á hverju ári koma saman hlauparar sem hlaupa iðjulega fyrir ástvin sem þau hafa misst ...
Þorlákur FC tileinkar treyju ársins Sorgarmiðstöð
Knattspyrnufélagið Þorlákur Football Club hefur frá stofnun sinni verið meira en hefðbundið fótboltafélag. Félagið varð til úr sorg, vináttu og löngun til að halda minningu ...
Bækur fyrir börn í sorg
Sorgarmiðstöð fékk kærkomna heimsókn frá Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur Backsem tók að sér að þýða og flytja inn bækur og kennsluefni fyrir börn í sorg. Efnið ...
Sorgarhlaupið
Fyrsta Sorgarhlaupið tókst afar vel og erum við innilega þakklát öllum þeim sem tóku þátt, mættu á svæðið og komu að skipulagi og uppsetningu viðburðarins. ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira