Samtal eftir sýninguna „Ég hleyp”

Borgarleikhúsið og Sorgarmiðstöð buðu upp á umræður eftir sýninguna „Ég hleyp” þann 7. apríl. Í umræðum tóku þátt Harpa Arnardóttir leikstjóri, Gísli Örn Garðarsson leikari og Maríanna Clara Lúthersdóttir sem er listrænn ráðunautur leikhússins. Frá Sorgarmiðstöð voru Steinunn Sigurþórsdóttir og Gunnar Lúðvík Gunnarsson en þau deila þeirri sáru reynslu að hafa misst barn.
Leikhúsgestir tóku einnig þátt í umræðunum með spurningum úr sal. Umræðurnar tókust vel og gáfu enn betri sýn á verkið ásamt því að gestir fengu að vita hvernig leikarinn undirbýr sig daginn fyrir sýningu.
Ein af þeim spurningum sem kom fram var: Er sýningin hjálpleg þeim sem hafa nýlega misst ástvin?
Eins og með svo margt þá er misjafnt hvað hjálpar fólki í sorginni, við erum öll ólík og ekki hægt að svara þessu á einfaldan máta en þeir syrgjendur sem voru í salnum voru sammála um að hægt sé að tengja sterkt við þær krefjandi tilfinningar sem komu fram hjá syrgjandi föður. Það kom líka fram í umræðunum að ein af ástæðum þess að ráðist var í að setja upp verkið var að aðstandendum sýningarinnar fannst mikilvægt að að opna umræðuna um sorgina og dauðann og þann vandræðagang sem syrgjendur upplifa frá fólkinu í kring sem ekki veit hvað skal segja eða gera.
Sorgarmiðstöð þakkar Borgarleikhúsinu kærlega fyrir samvinnuna í þessum umræðum. Sérstakar þakkir fær Gísli Örn leikari sem skilar hlutverki sínu á einstakan hátt og í leiðinni að láta syrgjendur njóta puðsins af þeirri vinnunni en Gísli Örn lætur allan ágóða af sýningunni renna til góðra málefna.

Karlmenn og sorg
Fimmtudaginn 28. maí stóð Sorgarmiðstöð fyrir viðburðinum “Karlmenn og sorg” í Vídalínskirkju. Mæting fór fram úr björtustu vonum og greinilegt er að þörf er á ...
Styrkur frá Nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar
Sorgarmiðstöð barst á dögunum afar kærkomin styrkur frá nemendafélagi Menntaskóla Borgarfjarðar sem hélt góðgerðarviku nú í vor til styrktar Sorgarmiðstöðvar. Alls söfnuðust 642.477 krónur sem ...
Heiðursbollinn afhentur Rósu Kristjánsdóttur
Valdís Ólafsdóttir er hönnuður Heiðursbollans í ár. Valdís hannar undir merkinu “Dísa- Litlu hlutir lífsins” og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Valdís ...
Sorgarmiðstöð hlýtur hvatningarverðlaun frá Rótarýklúbbnum
  Það var Sorgarmiðstöð mikill heiður að hljóta hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Straums þann 7. maí 2026. Viðurkenningin er mikilvæg hvatning fyrir starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar og staðfesting á ...
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur Sorgarmiðstöðvar var haldinn miðvikudaginn 15. apríl í Lífsgæðasetrinu. Allir í stjórn ársins 2025 buðu sig fram aftur og voru endurkjörnir til annars tímabils. Berglind ...
Samtalsþjónustan nú í boði á Akureyri
Sorgarmiðstöð hefur útvíkkað þjónustu sína á norðurlandi og býður nú upp á samtalsþjónustu á Akureyri. Viðtölin fara fram í húsakynnum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis en ...

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira