Sorgarmiðstöð fékk kærkomna heimsókn frá Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur Back
sem tók að sér að þýða og flytja inn bækur og kennsluefni fyrir börn í sorg. Efnið var upphaflega gefið út í Danmörku í samstarfi við dönsku sorgarmiðstöðina og er eftir Julie Døssing Frost.
Bækurnar fjalla um íkornann Korku og vini hennar sem hjálpa börnum að setja orð á tilfinningar tengdar sorg, söknuði, lífi og dauða. Um leið veita þær foreldrum og fagfólki stuðning til að eiga opið og öruggt samtal við börn um erfið málefni.
Sögurnar eru hlýjar, fjörugar og fullar af lífi, þótt þær fjalli um sorg og missi. Þær minna okkur á að hægt er að sakna og vera glöð á sama tíma, og að minningar og tengsl lifa áfram á sinn hátt 🧡
Bækurnar fást bæði stakar og saman í pakka með öðru kennsluefni. Í pakkanum/koffortinu eru allar fimm bækurnar, verkefna- og samræðuspjöld, bangsi, skikkja og fræðsluefni um sorg og sorgarviðbrögð barna. Bækurnar er hægt að nálgast hér.
Til þess að kaupa Koffortið þarf að hafa samband við Kirkjuhús í síma 528 4200







Sorgarmiðstöð fékk eitt eintak af kofforti að gjöf frá Kirkjuhúsi og er það nú aðgengilegt til skoðunar og að láni hjá Sorgarmiðstöð. Fyrir frekari upplýsingar um útlán má hafa samband við sorgarmidstod@sorgarmidstod.is