Hafnfirðingurinn og athafnarmaðurinn Hermann Fannar Valgarðsson hefði orðið 40 ára laugardaginn 22. febrúar 2020. Að því tilefni voru haldnir styrktar- og minningartónleikar í Bæjarbíó þar sem margir af fremstu tónlistarmönnum landsins komu fram. Þar má nefna Per:Segulsvið, Friðrik Dór, JóiPé og Króli, Súrefni, GÓSS, Elísabet Ormslev, Huginn og DJ Egill, Snorri Helgason og Saga Garðarsdóttir.
Eftir andlát Hermanns var stofnaður LUV minningarsjóður og hinn alþjóðlegi LUV dagur. Minningarsjóðurinn veitti Sorgarmiðstöð allan ágóðan af tónleikunum að upphæð 1.112.000 kr. Sorgarmiðstöð kann þeim bestu þakkir fyrir rausnarlegan stuðning.