Dánarvottorð

  • Dánarvottorð fæst á sjúkrahúsi þar sem hinn látni lést eða hjá lækni sem annast hefur hinn látna. 
  • Dánarvottorð er afhent venslamanni, svo sem maka eða öðrum nánum aðstandanda.
  • Dánarvottorð er annars vegar tilkynning til Þjóðskrár um banamein og andlát viðkomandi og hins vegar tilkynning til sýslumanns um andlátið.
  • Aðstandandi ber ábyrgð á að afhenda dánarvottorðið sýslumanni í því umdæmi þar sem hinn látni átti lögheimili þegar hann lést.
  • Hafi hinn látni verið búsettur erlendis skal dánarvottorð afhent sýslumanni í því umdæmi þar sem útför fer fram.
  • Sýslumaður afhendir aðstandanda staðfestingu á því að honum hafi borist dánarvottorðið. Staðfestingin er nauðsynleg svo að hægt sé að halda útför og getur hún ekki farið fram fyrr en dánarvottorðið hefur verið afhent sýslumanni.
  • Sýslumaður sendir dánarvottorðið til Þjóðskrár.
  • Sýslumaður aðstoðar eftirlifendur með dánarbú og veitir upplýsingar um erfðamál. 
  • Sýslumaður sendir tilkynningu til innlánsstofnana og biður um að innistæður á reikningum hins látna séu frystar.

Afrit af dánarvottorði

Embætti landlæknis varðveitir dánarvottorð. Jafnskjótt og andlát hefur verið skráð í Þjóðskrá, ásamt nauðsynlegum upplýsingum, sendir Þjóðskrá Íslands dánarvottorðið til landlæknis skv. Lögum um dánarvottorð nr. 61/1998.

Bankareikningar

Bankareikningum á nafni hins látna er lokað þegar dánarvottorði hefur verið skilað. Því er mikilvægt að gera ráðstafanir áður til þess að hægt sé að greiða reikninga og kaupa nauðsynjar.

Hafi hjón eða sambúðarfólk haft sameiginlega bankareikninga þarf eftirlifandi maki að stofna nýjan reikning og sjá til þess að t.d. laun og aðrar greiðslur fari ekki inn á sameiginlegan reikning.

Ef og þegar eftirlifandi maki fær leyfi sýslumanns til setu í óskiptu búi er hægt að láta opna aðgang að reikningum hins látna að nýju.

LÍFSGÆÐASETUR Í ST. JÓ

SUÐURGATA 41, 220 HAFNARFJÖRÐUR

sorgarmidstod@sorgarmidstod.is

Sími: 551 4141

Kennitala: 521118-0400
Reikningsnúmer: 0513-26-009753

Landlæknisembættið er verndari Sorgarmiðstöðvar

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira