29/04/2025
Lífsgæðasetrið

Að missa ástvin skyndilega

Það er sársaukafullt að missa ástvin skyndilega. Okkur er ýtt út í úrvinnslu tilfinninga sem virðast oft á tíðum stjórnlausar, sérstaklega í byrjun. Við þurfum mikinn stuðning og utanumhald frá okkar nánustu og jafnvel fagaðila líka. Við þurfum að hlúa vel að okkur og reyna nýta þau bjargráð sem geta gagnast okkur í sorgarferlinu.

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá Embætti landlæknis ætlar að flytja erindið en hún hefur reynslu af skydilegum ástvinamissi og sinnir stuðningshópastarfi í Sorgarmiðstöð.  Í erindinu er farið yfir helstu atriði sem nýtast í sorgarúrvinnslunni og hvernig við getum styrkt okkur eða okkar nánustu sem best í því ferli.

Nauðsynlegt er að skrá sig á erindið til að tryggja sér pláss.

Skráning hér 

Erindið hefst kl. 20:00

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira