Nýlega misst

Á ca. mánaða fresti býður Sorgarmiðstöð upp á erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin. Erindið heitir Þegar ástvinur deyr – nýlegur missir og er þar leitast við að veita fólki grunnfræðslu um sorg og sorgarviðbrögð, auka skilning þeirra á sorgarferlinu og  þannig styðja þau í að finna jafnvægi í daglegu lífi eftir ástvinamissi. Eftir fræðsluna er stutt kynning á þjónustu Sorgarmiðstöðvar.

Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið til að tryggja pláss og er hámarksfjöldi í hvert skipti.

Hægt er að skoða hvenær næsta erindi er á dagskrá og skrá sig hér

Syrgjendum stendur til boða að taka aðstandanda með sér á erindið og getur verið mjög gott fyrir nánasta aðstandanda að koma með á erindi og fræðast um sorgina og sorgarferlið og geta þá stutt betur við bakið á sínum ástvin.

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira