„Börn í sorg og skólasamfélagið“
Sorgarmiðstöð býður upp á fræðsluerindi um sorg og sorgarviðbrögð barna. Markmiðið er að styrkja skólasamfélagið í vinnu sinni með börnum í sorg.
Erindið byggir bæði á fræðilegum grunni og reynslu kennara sem foreldra af sorg barna í skólaumhverfinu.
Sorgarmiðstöð telur skipta miklu máli að þekking fyrirlesara sé fjölþætt, þ.e. byggi á fræðilegri þekkingu um sorg og sorgarviðbrögð barna, eigin reynslu af því að eiga börn í sorg og reynslu af starfsemi grunnskóla og leikskóla.
Þær sem flytja erindið eru kennarar að mennt með yfir 10 ára starfsreynslu í grunn og leikskóla og hafa átt börn í sorg. Þær misstu báðar maka og áttu á sama tíma börn í leikskóla og grunnskóla. Báðar hafa einnig setið í stjórn sorgarsamtaka.
Með erindinu fylgir bókin Börn og sorg eftir dr. Sigurð Pálsson. Hún kom fyrst út fyrir rúmum 20 árum og hefur verið ófáanleg um tíma, en var nýlega endurútgefin. Efni hennar stendur vel fyrir sínu og er m.a. ætlað öllum skólastigum til leiðsagnar um um viðbrögð barna í sorg og mismunandi stuðningsþörfum eftir aldri barna. Sorgarmiðstöð studdi útgáfuna.