16/02/2023
Safnaðarheimili Glerárkirkju

Erindi fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin – Akureyri

Nú er Samhygð orðin aðildarfélag Sorgarmiðstöðvar og fyrsti liðurinn í vinnu okkar fyrir norðan er að koma til Akureyrar þann 16. febrúar og flytja erindið ,,Þegar ástvinur deyr“. Það erindi er reglulega á dagskrá hjá Sorgarmiðstöð fyrir þau sem hafa nýlega misst ástvin og fjallar um sorg og sorgarviðbrögð. 

Sorg og sárar tilfinningar eru eðlileg viðbrögð við missi. Sorgin er  hluti af mannlegri reynslu og henni þarf að finna eðlilegan farveg. Mikilvægt er að vita að sorg er einstaklingsbundin og breytileg.  Með grunnfræðslu um sorg  og sorgarviðbrögð og ábendingum um ráð, sem gagnast hafa syrgjendum er leitast við að auka skilning á sorgarferlinu og  þannig styðja fólk til að finna jafnvægi  í daglegu lífi  eftir ástvinamissi.

Syrgjendum stendur til boða að taka náinn aðstandanda með sér á erindið ef þeir kjósa.

Nauðsynlegt er að skrá sig og aðstandanda á erindið til að tryggja pláss og er hámarksfjöldi í hvert skipti.

Skráning hér
.

ATH: Þetta erindi er einungis ætlað fullorðnum.

Erindið hefst kl. 18:00

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira