01/09/2020
Hvaleyrarvatn

Gönguhópurinn SKREF FYRIR SKREF

Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF FYRIR SKREF býður upp á skipulagðar göngur fyrsta þriðjudag í mánuði. Fyrsta ganga hópsins verður í kringum Hvaleyrarvatn og nágrenni. Létt ganga til að byrja með en lengd göngunnar er um 5 km. Við hittumst á fyrsta bílastæðinu við vatnið þegar komið er frá Kaldárselsvegi.

Þegar við upplifum áfall eins og ástvinamissi er flestum hjálplegt að komast í kynni við og hitta aðra sem eru í sömu sporum, finna skilning og stuðning þeirra sem deila reynslu. Það er sumt sem getur hjálpað okkur til að líða betur eins og hreyfing og útivist. Að nýta náttúruna og útiveru gefur okkur orku og losar um spennu. Göngur eru því hjálplegar þegar við tökum skrefin framávið í sorgarferlinu.

Við vonum innilega að þið sláist í för með okkur

Gangan hefst kl 17:00

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira