24/11/2020
Lífsgæðasetur st. Jó

Hópastarf: Makamissir – FRESTAÐ

Í LJÓSI AÐSTÆÐNA ÞURFUM VIÐ AÐ FRESTA ÞESSU HÓPASTARFI


Við munum hafa samband við alla sem eru skráðir í hópastarfið símleiðis eða í tölvupósti þegar við getum farið af stað með starfið.

Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningshópa fyrir ekkjur og ekkla sem hafa orðið fyrir makamissi. Í hverjum hópi eru um tíu manns sem hittast vikulega og eru tveir fagaðilar sem halda utan um hvern hóp.

Hópastarfið er í 6 vikur og hefst 24. og 25. nóvember. Skipt verður í hópa eftir fjölda og aldri. Hægt er að skrá sig hér
Nauðsynlegt er að skrá sig í hópastarf til að tryggja þátttöku.

Nánari upplýsingar um fjölda hópa og tímasetningu verða veittar þegar nær dregur og flestar skráningar hafa borist.

4 skipti verða fyrir áramót og 2 skipti eftir áramót.

ATH: Það kostar ekkert að koma í hópastarf.

LÍFSGÆÐASETUR Í ST. JÓ

SUÐURGATA 41, 220 HAFNARFJÖRÐUR

sorgarmidstod@sorgarmidstod.is

Sími: 551 4141

Kennitala: 521118-0400
Reikningsnúmer: 0513-26-009753

Landlæknisembættið er verndari Sorgarmiðstöðvar

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira