18/02/2020
Lífsgæðasetur st. Jó

Opið hús og slökun

Þegar við upplifum áfall eins og ástvinamissi er flestum hjálplegt að komast í kynni við og hitta aðra sem eru í sömu sporum, finna skilning og stuðning þeirra sem þekkja af eigin reynslu hvað við er að etja.
Sorgarmiðstöð hefur ákveðið að bjóða upp á opið hús og djúpslökun einu sinni í mánuði. Þar gefst syrgjendum tækifæri til að slaka vel á, hlaða batteríin og hitta aðra sem deila reynslu. Ákveðið umræðuefni verður tekið fyrir hverju sinni.

Nánari lýsing:  Yoga Nidra hefst kl. 19:30 í sal Sorgarmiðstöðvar Lunganu og mun Sigrún Jónsdóttir Yoga Nidra kennari leiða hópinn inn í notalega djúpslökun. Óskað er eftir skráningu hér
Samtal um ástvinamissi hefst kl. 19:50 inn í litla samverurými Hjartanu.

Verið innilega velkomin

Boðið er upp á kaffi og með því.

Hefst kl 19:30

Lokað yfir hátíðirnar

Sorgarmiðstöð verður lokuð frá 25. desember til 2. janúar. Ef erindið er brýnt má hringja í neyðarsíma okkar 862 4141

Á heimasíðu Sorgarmiðstöðvar eru notaðar kökur (e. cookies). » meira